Markús B. Þorgeirsson
F: 14. ágúst 1924 - D: 24. nóvember 1984
Björgunarnetið Markús eða "Markúsarnetið" eins og flestir sjómenn kalla það, varð til út frá reynslu og framtakssemi íslensks sjómanns.
Upphafsmaðurinn, Markús B. Þorgeirsson átti stærstan þátt í að koma þessu tæki á framfæri og fer því vel á því að það beri nafn hans nú, þegar þetta tæki er að verða alþjóðleg viðmiðun um búnað til að ná manni úr sjó með handafli.


