Markus Lifenet ehf.
Markus Lifenet ehf hefur sérhæft sig í þróun og framleiðslu á maður fyrir borð björgunarvörum síðan 1979 og hefur fyrirtækið kynnt þekktustu vöruna sína, Markúsarnetið, á alþjóðamörkuðum síðan 1984. Við lok árs 1999 kom á markað 5. kynslóð Markúsarnetsins sem nefnist MS og hefur sú kynslóð verið viðurkennd óbreytt síðan á Íslandi og af alþjóðlegum flokkunarfélögum. Markúsarnet eru viðurkennd til notkunar í öllum tegundum dekkbáta, skipa, hafnarsvæða og vinnupalla á sjó (offshore installations).
Samhliða þróun og framleiðslu Markúsarneta hefur fyrirtækið ætið haft á boðstólnum maður fyrir borð neyðarstiga, nú MEL2-270 og staka Neyðarlínu í kastpoka með brjóstlykkju fyrir björgunarmann nú RLC25
Árið 2002 þróaði fyrirtækið tvær útfærslur af björgunarneti fyrir léttabáta MBR6-185R og MBR6-235 og hefur það náð vinsældum. Eru þau mun fyrirferðaminna, léttara og auðveldara í notkun en aðrar þekktar lausnir á markaði.
Þróun léttabátsnetanna leiddi af sér þróun klifurneta SCN6, fyrst fyrir hafnsögubáta og farþegabáta (tender boats) og síðan fyrir stærri skip. Eftirspurn eftir slíkum netum hefur farið mjög vaxandi, enda eru Markus maður fyrir borð klifurnetin 6 sinnum léttari en hefðbundin klifurnet og því bæði vel færanleg (mobile) og bjóða upp á að manni sé lyft á handafli um borð, sem getur stigið í netið við skipssíðuna og læst höndum í möskva netsins.
Markúsarnetið hefur gegnt þýðingarmiklu hlutverk í að auka öryggi sjómanna og hefur það margsinnis verið notað við björgun mannslífa við erfiðar aðstæður á sjó og í höfnum. Þess vegna hefur þess verið krafist að slíkur búnaður sé staðsettur á hverju dekkskipi á Íslandi, sem er 15 metrar eða hærra, síðan 1. janúar 1986. Markúsarnetið er Lloyds Register / SOLAS viðurkennt til notkunar á dekkbátum, skipum og vinnupöllum á sjó. Þess vegna má selja það sem búnað til að bjarga fólki úr sjó í öll skip og vinnupalla á sjó hvar sem er í heiminum, þar sem krafist er búnaðar til að bjarga fólki úr sjó.
Markúsarnetið hefur verið kynnt fyrir aðalþingi (MSC) og tækninefnd (DE) Alþjóða Siglingastofnunarinnar (IMO) með fulltingi Siglingastofnunar Íslands. Síðastliðin 5 ár hefur verið í þróun ný regla III-17.1 og LSA lýsing í SOLAS (Sáttmála um öryggisreglur á heimshöfunum) þar sem þess verður krafist að öll skip sem sigla undir SOLAS reglum, geti sýnt fram á að þau hafi búnað til að bjarga fólki úr sjó við verstu aðstæður. Áætlað er að nýju kröfurnar taki gildi 2012. Ísland hefur verið virkur aðili í mótun þessara nýju reglu og hefur sérfræðingur Markus Lifenet verið stofnuninni til ráðgjafar á DE fundum IMO.
Lausnirnar sem við bjóðum upp á byggja á margra áratuga reynslu við aðstæður þar sem aðrar lausnir hafa ekki dugað.
Lausnir okkar eru einfaldar, árangursríkar, áreiðanlegar og raunhæfar við verstu aðsæður, þegar hver sekúnda skiptir máli.
Flestar vörur okkar er hægt að nota bæði handvirkt og með krana.