Notendur Markus Lifenet Björgunarbúnaðar

Markúsarnetið er staðsett í nær öllum íslenskum skipum og í þúsundum báta og skipa um allan heim.  Netið er notað í hverjum mánuði, bæði við raunverulegar björgunaraðstæður og við björgunaræfingar en æfingarnar geta komið í veg fyrir kostnaðarsöm áföll og mannskaða.

 

Notkun netsins er ekki lengur fréttnæm, þar sem netið leysir vandamálið samstundis, þegar það er notað á réttan máta og notendur þekkja kosti þess og takmarkanir. Þannig hefur netið ráðið úrslitum um björgun manna og hunda sem fallið hafa útbyrðis í ólgusjó, við björgun manna úr gúmmíbát og flugvél og úr lestum skipa með sleipan fljótandi lífrænan farm, s.s. loðnulest.

 

Fyrir tilvist Markúsarneta, bjarganir með því og virka þátttöku í þróun reglna um björgunarnet bæði á Íslandi 1984-2000 og á vettvangi Alþjóða Siglingastofnunarinnar 1991-2011, hafa þróast kröfur í SOLAS (Alþjóðasáttmáli um öryggi á hafinu) sem eiga að tryggja að sjómenn hafi viðeigandi búnað til að bjarga fólki úr sjó án þess að hætta lífi sínu og heilsu.

 

Öll skip 15 metra og lengri skráð á Íslandi hafa verið skyldug að hafa björgunarnet um borð síðan 1. janúar 1986. Sums staðar erlendis eru útgerðir krafðar um áhættumat og öryggisáætlun um viðbrögð við því, þegar maður er í sjó, við eða nálægt skipi og sérhæfðan tiltækan björgunarbúnað sem fullnægir til að bjarga manni úr sjó. Maður fyrir borð óhapp/slys er þá greint sem 3ja stigs áhætta í áhættumati (hæsta stig), sem þýðir að skip má ekki fara úr höfn nema að sýnt sé fram á að það hafi slíka öryggisáætlun og björgunarbúnað í viðurkenndu ástandi sem áhöfnin hefur æft notkun á.

 

Hafnir á Íslandi eru og skyldar að hafa viðurkennd björgunarnet á öllum sínum hafnarsvæðum eða jafngildan búnað. Hér á Íslandi hefur björgunarbelti verið metið af Siglingastofnun sem jafngildur búnaður við handvirkt björgunarnet á hafnarsvæðum síðan 2004. Í þessu felst mikil mismunun og ranghugmynd þeirra sem sett hafa slíka reglu og þeirra sem það mál hafa sótt stífast, þar sem björgunarbelti eitt og sér er ekki hægt að nota til að lyfta manni með handafli úr sjó, við bryggju, en það var aðalástæðan fyrir því að handvirkra björgunarneta var krafist á bryggjusvæði í upphafi.

 

Markús Lifenet vörur er að finna um borð í eftirfarandi:

 
  • antipesdsc03410 2.jpg
  • clharald.jpg
  • clipper_moon_180.jpg
  • clipperskagen_1.jpg
  • fpso serpentina drill ship 233977.jpg
  • lady thuraya equipped with markusnet 2670_0.jpg
  • meriluoto.jpg
  • pride of clide.jpg
  • saeulfur2.jpg
  • sdc10483.jpg
  • selene205520tiama20bimini20clean-1.jpg
  • taiwanrescueboat.jpg
footer - isl