Markúsarnet MS.10, MS.20, MS.30, MS.40

Maður fyrir borð öryggis- og björgunarleiðbeiningar

Maður fyrir borð björgunaræfingar

Þjálfun áhafnar í notkun á Markúsarnetinu er mikilvæg og ætti að endurtaka á fjögurra mánaða fresti í það minnsta. Nýliðar verða einnig að læra með hagnýtum æfingum og góðum stuðningi, hvernig á að nota Markúsarnetið og pakka því. Markúsarnetið er tilvalið til æfinga fyrir „maður fyrir borð" björgunarteymi og til að kynna öruggar björgunaraðferðir í miklum sjógangi og ofsaveðri.

Leiðbeiningar fyrir nýja áhafnarmeðlimi.

Samþykki, Gæða- og skoðunarkröfur

Markúsarnetið er framleitt samkvæmt kröfum SOLAS, Torremolinos og EC fyrir björgunarbúnað sem ætlaður er til björgunar á manni sem fallið hefur útbyrðis. Netið er Lloyd´s samþykkt fyrir notkun á öllum skipum og vinnupöllum á sjó en einnig uppfyllir það kröfur Siglingamálastofnun um björgunarnet. Allar týpurnar eru framleiddar með sama gæðastaðli, byggjast upp á sömu framleiðslu- og gæðalýsingu og notast er við sömu notkunarleiðbeiningarnar.

Krafist er reglulegra æfinga og skoðana

 

Notkun á vörunni er á ábyrgð notenda búnaðarins

Markúsarnet sem notað er til æfinga skal vera merkt sem slíkt, á skýran og skilmerkilegan hátt.

Vöruna skal skoða nákvæmlega á skoðunarstöð, sem samþykkt er af framleiðanda, innan við 5 ár eftir kaup.

Skoðunarleiðbeiningar er hægt að nálgast hjá framleiðanda.

 
footer - isl